Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
Dagurinn í dag
2.7.2009 | 09:15
Daginn í dag er mjög mikilvægt að nota. Það er sjaldgæft og hefur verið sjaldgæfara síðustu ár að fólk virkilega þakki fyrir daginn í dag og upplifi sig sem heppna lífveru að fá þessa 24 tíma í viðbót við sitt líf. Gæti verið að að hluta til sé þetta vegna þess að líf okkar er að lengjast? Hér áður fyrr áttum við eingöngu að verða 40-50 ára en í dag er sá tími mun lengri og er fólk oft við hestaheilsu fram á áttræðisaldur.
Núna hellast yfir mann allskyns leiðindafréttir eins og þungur foss úr hæstu hæðum. Hokinn gengur maður um daginn hugsandi um leiðinlegar stórkuldir þjóðarinnar og slæmt orðsport. Það er auðvelt í þessu að gleyma því sem er manni mikilvægast, eins og til dæmis dagurinn í dag. Við eigum að nýta þann tima sem okkur er gefinn en ekki taka hann sem gefinn.

Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)